<$BlogRSDUrl$>

fimmtudagur, apríl 03, 2008

NÝR FJÖLSKYLDUMEÐLIMUR VÆNTANLEGUR... 



... og nei ég er ekki ólétt. En ég er alveg jafn spennt fyrir því. Við Ásberg ætlum nefnilega að fá okkur hvolp og ég fór og hitti litlu hvolpastelpuna okkar í fyrsta skipti á mánudaginn. Aðeins 3ja vikna gömul, hún gerði lítið annað en að sofa, en algjör "sleeping beauty". Þetta er tík af tegundinni Border terrier, sem er að mínu mati mjög skemmtileg hundategund.... og falleg líka... finnst mér allavega, þó að mamma mín sé ekki alveg sammála. Ég sendi mömmu nefnilega myndir af mömmu hvolpanna, og mamma sagði "hvolpurinn er voða sætur... en mamman lítur svolítið skringilega út" .


En mamma, þú verður bara að sætta þig við þetta, því "barnabarnið" þitt á eftir að líta svona út þegar hún stækkar.







-

This page is powered by Blogger. Isn't yours?

Site Meter