<$BlogRSDUrl$>

mánudagur, október 03, 2005

sjúbbídúú 

Það er allt í drasli, en samt er voða gott að vera flutt. Ég gisti hjá mömmu og pabba um helgina en í nótt ætla ég að sofa í nýju íbúðinni minni DADDADADAMMMMM!!! Mamma sagði að ég ætti að telja gluggana í íbúðinni áður en ég færi að sofa, og svo ætti ég að reyna að muna hvað mig dreymdi fyrstu nóttina. Þegar ég reyndi að fá nánari upplýsingar og tilgang þessarar reglu, varð fátt um svör. En svo var ég að tala við Ásberg áðan (já hann heitir Ásberg!!) og hann sagði að maður mætti alls ekki sofa fyrstu nóttina á mánudegi, það boðaði ógæfu! Ég veit ekki alveg hvort ég eigi að trúa honum. Ég nenni eiginlega ekki að hjóla alla leið til mömmu og pabba.... ég ætla bara að telja gluggana og vona það besta.



Miranda: I'm trying to change my bed karma. I figure if I can make my bed a place I really want to be, others will feel the same.
Carrie: Aah, the Field of Dreams.
Miranda: Exactly. If you build it, he will come.

-

This page is powered by Blogger. Isn't yours?

Site Meter