<$BlogRSDUrl$>

sunnudagur, október 09, 2005

Læknir-dýralæknir......same same... 

Ég er sko ekki að verða dýralæknir fyrir ekki neitt! Fór með bróður mínum upp á slysó á föstudagskvöldið, því hann skar sig á bjórflösku sem hann var að opna fyrir mig. (það er klaufaskapur í ættinni). Eftir langa bið á slysó, komið fram á nótt og ég alveg að sofna, þá kemur læknirinn loksins. Þegar hann heyrir að ég er dýralæknanemi spyr hann hvort ég vilji ekki barasta sauma. Ég hélt fyrst að hann væri að grínast, en honum var fúlasta alvara. Svo ég tek hann bara á orðinu og sauma litla "dýrið"; hann bróður minn! Þetta gekk eins og í sögu og ég var bara voða stolt, læknirinn dáðist meira að segja að hnútunum mínum.
Sko þetta get ég!


Charlotte: Imagine, being blind and not being able to see a beautiful day like today. Can you think of anything worse?
Anthony: Stonewashed jeans and a matching jacket.

-

This page is powered by Blogger. Isn't yours?

Site Meter