<$BlogRSDUrl$>

þriðjudagur, febrúar 10, 2004

Sorrý Jón Kristján. Ég tilkynni það hérmeð að litli bróðir minn setti upp gestabókina fyrir mig. Ég hefði ekki getað gert það án hans, og ég er ævinlega þakklát fyrir alla þá tölvuhjálp sem hann hefur veitt mér í gegnum tíðina, og það hefur ekki verið neitt smáræði. (Jæja ertu sáttur núna??!!)

Ég er orðin skautadrottning, eða allavega á góðri leið með að verða það. Ég er búin að fara á tvær æfingar og á fyrstu æfingunni var ég byrjendahópnum (og með krampa í iljunum allan tímann) og á seinni æfingunni fór ég upp í næstbesta hópinn (eða næstversta eftir því hvernig maður lítur á það). Ætli ég verði ekki bara sett í besta hópinn á næstu æfingu og svo sjáið þið mig örugglega á heimsmeistaramótinu í mars. Jahá það kæmi mér ekkert á óvart.

-

This page is powered by Blogger. Isn't yours?

Site Meter